Tumgik
bjutiboxid-blog · 13 years
Note
Á maður að bretta upp á augnhárin áður en maður setur maskarann á? Og afhverju?
Sæl, það gerir oft mikið fyrir augu sem vísa aðeins niður á við eða fyrir eldri augu að "opna" þau með því að bretta augnhárin. Einnig ef augnhárin þín standa beint fram eða hafa ekki náttúrulega sveigju er sniðugt að bretta þau, þá opnast augun meira og virka stærri. Ef þú brettir eftir að þú setur maskarann á er hætta á að þú klípir augnhárin hreinlega af - svo ég mæli ekki með því. Vona að þetta hafi svarað spurningu þinni, endilega haltu áfram að fylgjast með á nýju síðunni, bjutiboxid.blogspot.com :)
xoxo
0 notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Bjútíboxið fær nýtt heimili!
Vona að þetta valdi ykkur ekki of miklum óþægindum, en nýja slóðin er:
bjutiboxid.blogspot.com
Þar er auðveldara að kommenta og skemmtilegra umhverfi!
Njótið vel og takk fyrir lesturinn!
xoxo
0 notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
NYX gerviaugnhár
Gleðilega stutta vinnuviku :)
Langaði að sýna ykkur uppáhaldsgerviaugnhárin mín:
Tumblr media
Þau heita Elite og koma 2 pör í pakka. Það þarf að klippa þau í sundur og þá passa þau akkúrat inn að miðju á augnlokinu til að gefa fabjúlöss yfirbragð á hvaða förðun sem er. Þau gera svo mikið án þess að vera OF mikið. Það fylgir lím sem er alveg hreint ágætt og vel nothæft en ef þið eigið Duo lím þá myndi maður nú ekki slá hendinni á móti því!
Munið svo bara að taka þau af og setja þau aftur í boxið og nota þau aftur og aftur - því það er hægt að nota parið allt að 10 sinnum! Mig minnir að þau hafi kostað í kringum 1.500,- krónur, án þess að ég þori að hengja mig upp á það...
Fæst í Airbrush og Make-Up Gallery í Hafnafirði og í Make-Up Gallery á Akureyri.
xoxo
1 note · View note
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Winged eyeliner
Ég ætla að sýna ykkur skref fyrir skref hvernig mér finnst best að setja á mig eyeliner þannig að hann verði "winged" eða vængjaður, eða eitthvað betra orð. :) Látum myndirnar tala:
Tumblr media
Þetta eru eyelinerburstarnir mínir. Efst er NYX bursti sem er skáskorinn, líka góður til að bæta lit í augabrúnir. Þá kemur Make Up Store mjór, þessi algengasti eyelinerbursti. Þriðji er Bobbi Brown bursti og neðstur er NN Cosmetics burstinn. Þessa tvo neðstu er flott að nota líka í augnskugga ef maður vill ná mjórri línu.
Tumblr media
Hér er ég rétt byrjuð. Ég notaði MAC BlackTrack Fluidline gel linerinn og NN Cosmetics burstann. Ég byrja aðeins inn fyrir miðju og dreg línu út, bæti smám saman í hana. Best er að reyna ekki að gera heila línu í einu, það endar yfirleitt með ósköpum :) Reynið frekar að gera stuttar línur og tengja þær við næstu.
Tumblr media
Svo vel ég mér stað þar sem ég læt endapunktinn á "vængnum" vera. Ég dreg þaðan og inn að því sem ég gerði áður, bæti svo smám saman til að bæta þykkt við. Mér finnst ágætt að miða við að þar sem ysta augnhárið mitt endar þegar ég opna augun, það sé ca. staðurinn þar sem "vængurinn" endar. Kannski virkar það ekki á öllum en það er ágætt að hafa smá viðmiðunarpunkt, þó maður greypi það ekki í stein.
Tumblr media
Svo er bara að bæta í, breyta og nota eyrnapinna til stuðnings ef maður er farinn að gera of þykkt :) "Vængurinn" að ysta parti augans er næstum því eins og þríhyrningur í laginu, svo er fallegast að láta linerinn mjókka eftir því sem maður fer innar.
Tumblr media
Voilá!
Svo er bara málið að reyna að líta sem mest seiðandi út með svona flottan liner ;) Ef þið viljið hafa hann dramatískari þá er hægt að hafa hann enn þykkri á endanum og enn minni innst.
Þetta gerir sko hvaða lúkk og outfit sem er mjög fágað og fínt finnst mér. Ef maður nennir að vinna í því að æfa sig aðeins (þolinmæði stelpur, þolinmæði) borgar það sig sko þegar mann langar að vera Marilyn Monroe eins og eitt kvöld! Svo er um að gera að vera með eitthvað laust og létt í hárinu, ljósan varalit eða gloss og maður er good to go!
xoxo
5 notes · View notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Label.m
Nú er sá tími kominn að mig langar að breyta um hár - stíl þ.e.a.s. og þá fer mig að langa að prófa nýjar vörur! Hver hefði trúað því!
Tumblr media
Mest af öllu langar mig að prófa þetta, las um þetta í Cosmo fyrir langalangalöngu en lét aldrei verða af því að kaupa, hélt reyndar að þetta væri alls ekki til á Íslandi. Þetta er sem sagt Sea Salt Spray sem ýtir undir náttúrulega "wavy" hár, svona eins og við höfum svo oft séð hjá henni Blake Lively
Þessar svokölluðu beach waves eru búnar að vera í tísku í svolítinn tíma og gera ótrúlega mikið fyrir sítt, venjulegt hár. Það besta er að maður þarf ekki að eyða fullt af tíma í að krulla með járni og þar af leiðandi fer það betur með hárið! Í þessu spreyi frá label.m er hita- og UV vörn svo það er algjör snilld að nota það yfir sumarið þegar maður er mikið úti í sólinni.
Tumblr media
Á hinn bóginn langar mig líka að prófa þetta Smoothing Cream, sem "róar" hárið ef svo má að orði komast, gerir það slétt og fínt og verndar það einnig gegn hita og UV-geislum.
Þá ætla ég að skjótast út í búð! ;)
Hvaða hárvörum mælið þið með? Hafið þið prófað eitthvað frá label.m eða eruð þið kannski háðar Bed Head? :)
xoxo
0 notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Umfjöllun: Maybelline farði
Ég hef verið að nota þetta meik undanfarnar vikur:
Tumblr media
Keypti það í snatri á tax free dögum í Hagkaup og nota það í vinnuna og þegar ég vil vera með eitthvað létt á mér. Það er nú ekki slæmt að borga rúmar 2.700 krónur fyrir meik og maður þarf sko alls ekki meira en eina pumpu á allt andlitið.
Þessi farði á að gefa airbrush áferð og hann er mjög léttur. Það er best að setja hann á með puttunum og það þarf að passa að dreifa mjög vel úr honum - á mjög auðvelt með að fara í línur. Þess vegna nota ég puttana en ekki bursta. Mér finnst hann gefa fallega áferð fyrst eftir ásetningu en mér finnst hann alls ekki endast mjög lengi. Ég púðra alltaf yfir til að matta hann aðeins, nú er ég alls ekki með feita húð, en mér finnst samt alltaf vera hálfgerð slikja yfir andlitinu á mér.. svona... eins og andlitið sé pínu blautt. Vil ítreka að ég er ekki með feita húð og þetta gerist þó ég púðri yfir. Mögulega hentar farðinn þeim betur sem eru með mjög þurra húð.
Ég ætla nú samt að nota þessa túpu/dollu og sjá hvort mér líkar hún betur þegar líður á? En ég hugsa að ég kaupi ekki þessa gerð aftur. Ég hef samt heyrt góða hluti um aðra farða hjá þeim og langar að prófa t.d. Dream Matte Mousse, Superstay (hann á að endast í sólarhring!) og svo var að koma nýr sem heitir The Eraser og á að eyða öllum merkjum um línur, bauga og annað á húðinni. 
Myndi gefa þessum farða 2 og hálfa stjörnu af fimm :) Ágætt fyrir þetta verð.
xoxo
6 notes · View notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Stimpillakk - 2 lúkk!
Gerði 2 lúkk með sömu litum á mig og aðra skvísu;
Tumblr media
Krúttlegt blettatígurs þegar það er notað með léttum litum :)
Tumblr media
og svo svona teningamunstur á mig ;)
ohh það er svo gaman að gera svona alls konar :D
xoxo
1 note · View note
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
og við höldum áfram með júmbó!
Jumbo Lip Pencil er önnur snilld frá NYX, þau stoppuðu sko ekki við augnblýantinn. Þeir eru líklega úr svipaðri formúlu, mjúkir og meðfærilegir, í svakalega fallegum litum - og þeir eru sko til í a.m.k. 30 litum!
Tumblr media
Þessi heitir Pink Nude og gerir ótrúlega fallega "pearly" eða perlulega áferð. Mér finnst hann of glimrandi til að nota sem varalit en ég nota hann oft ef ég vil gera varirnar aðeins fyllri og set hann þá rétt á línuna á milli oddanna á efri vörinni og á miðjuna á línunni á neðri. Það er líka flott að vera með þennan undir og t.d. Smokey Look glossið frá NYX yfir.
Tumblr media
Þessi heitir Soft Fuschia og er mjög vinsæll líka.
Verið duglegar að prófa eitthvað nýtt:)
xoxo
6 notes · View notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Júmbó
Þetta er ein mesta snilldarvara sem ég hef kynnst :)
Tumblr media
Þetta er Jumbo blýantur frá NYX. Hann má nota sem augnskugga, augnskuggagrunn og þannig nota ég hann oftast. Ef þú vilt láta litinn poppa þá er þetta besti vinur þinn. Hann virkar vel sem augnskuggagrunnur fyrir þær sem svitna ekki á augnlokunum, þ.e. eru ekki vanar því að augnskugginn fari í línur. Ef hann gerir það þá þyrfti maður að nota annan grunn undir en þennan bara sem "litapoppara". Fyrri grunnurinn myndi þá matta augnlokið. Þessi blýantur er mjög kremaður og mjúkur, þetta er í raun ekki eins og venjulegur augnblýantur - enda er hann ekki notaður þannig. Það er auðvelt að dreifa úr honum.
Tumblr media
Þann svarta er svo tilvalið að nota ef maður vill fá extra dökkt um augun, t.d. er sniðugt að setja hann fyrst, dreifa úr honum yfir lokið eða þar sem maður vill vera dekkstur og setja svo augnskugga yfir.
Svo skemmir ekki fyrir hvað NYX er ódýrt ;) Fæst í Airbrush og Make-Up Gallery í Hafnafirði :)
xoxo
3 notes · View notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Hot and Spicy fyrir sumarið
Sagði ykkur frá því að ég keypti þennan lit um daginn :) Finnst hann svo sumar- og skemmtilegur!
Tumblr media
Lækitalot!
xoxo
1 note · View note
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Förðun með NN Cosmetics
Í dag (sunnudag) farðaði ég mig nánast eingöngu með NN Cosmetics vörum og ákvað að sýna ykkur afraksturinn fyrst ég var í myndavélastuði ;)
Dagsdaglega er meiköpp rútínan mín ca. svona:
-Hendi á mig rakavatni frá Sensai og rakakremi eða primer (fíla Clarins Beauty Flash Balm primerinn) -Pumpa smá meiki í lófann, set dropa hér og þar í andlitið og nota meikbursta til að dreifa jafnt og þétt úr með hringlaga hreyfingum. -Nota púðurbursta í dökkt púður og skyggi kinnbein, nef og enni. -Set á mig augabrúnirnar, ýmist með NN Cosmetics tússpennanum eða Dior augnabrúnablýantinum -Bretti augnhárin -Set á mig maskara (þetta skref er stundum gert í bílnum á leið í vinnu)
Í dag voru fyrstu þrjú skrefin svipuð, ég notaði reyndar meik frá NN Cosmetics sem er í stifti (lovit!) og notaði svo dekkri týpu af því til að skyggja. (Allar vörur í næstu skrefum eru frá NN Cosmetics nema ég taki annað fram) -Augnskuggagrunnur yfir bæði augnlokin
-Ljós augnskuggi yfir allt lokið og upp að augabrún -Dökkur skuggi, Frappe, við enda augnanna og blandaður aðeins inn á. Annar dekkri notaður til að dekkja enn meira við endana. -Ljósi skugginn aftur til að blanda fyrir ofan skygginguna og inn á lokin. -Svartur kremeyeliner settur á, byrjaði í miðju og vann mig út, svo aftur að miðju og inn í horn. Örmjó lína við neðri augnhár. -Brúnn augnskuggi í augabrúnir -Colossal maskari frá Maybelline. Maskari frá NN til að greiða betur úr (finnst Colossal flottur en hann klessir pínu)
og voilá!
Tumblr media Tumblr media Tumblr media
Þessar myndir voru teknar ca. 8 tímum eftir að ég setti þetta á - augnskugginn enn í fullkomnu standi ;) Þökk sé augnskuggagrunninum, algjör snilld.
xoxo
tékkið á Bjútíboxinu á Facebook ;)
8 notes · View notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Nýi MAC varaliturinn minn
Jæja hér kemur, eins og ég talaði um í síðustu færslu, mynd(ir reyndar) af nýja MAC varalitnum mínum. Hann heitir Creme de la Femme og er með Frost áferð.
Tumblr media
Svona er liturinn með flassi.
Tumblr media
Hér er hann ekki með flassi.
Það sést greinilega að það eru glimmerörður í honum en mér finnst þær alls ekki áberandi þegar liturinn er kominn á.
Kominn á:
Tumblr media
Finnst hann rosa flottur og hann gefur vörunum greinilega raka því ég verð ekki með "skorpnar" varir eftir hann. Ég notaði NN Cosmetics varablýant sem heitir Natural áður en ég setti litinn á, til að ýta varalínunni aaaaaðeins út (munið bara að ofgera því ekki, við vitum allar að Ásdís Rán fékk sér sílíkon eða kollagen eða hvað sem það var í varirnar, hún málar ekki bara alltaf aðeins út fyrir!)
Varablýantur gerir það að verkum að við getum leikið okkur meira með lögun varanna og þær verða meira "defined" - úff ég finn ekki rétta orðið á íslensku! Svo er gott að venja sig á að setja aðeins af varablýantnum inná varirnar, þá helst varaliturinn betur á og fer síður af í flekkjum.
xoxo
munið að like-a Bjútíboxið á Facebook!
0 notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Snyrtivöruþráhyggja
Ég kíkti á Bobbi Brown kynninguna í Snyrtistofunni Lind á fimmtudaginn. Það var sérstaklega verið að kynna hyljarann nýja sem ég talaði um í færslunni fyrir hér fyrir neðan, en það var líka 20% afsláttur af öllum BB vörum. Ég stóðst auðvitað ekki mátið.....
Tumblr media
Keypti mér þennan fallega varalit, það fyndna er að ég var búin að prófa annan sem var mjööög flottur - svolítið mikill litur fyrir manneskju eins og mig en ég ákvað að láta slag standa og vera villt! En svo kom ég út í bíl og leit á mig í baksýnisspeglinum og ákvað að ég vildi frekar kaupa þennan og nota hann þó allavega, heldur en að eiga hinn og þora aldrei að vera með hann! Liturinn heitir Bikini Pink :)
Svo keypti ég bursta sem heitir Touch Up og er tilvalinn til að hafa með í veskinu til að, eins og heitið gefur til kynna, laga meiköppið yfir daginn. Bæta við hyljara eða meiki, laga augnskugga og allt þar á milli.
Fyrir utan þennan 20% afslátt fékk ég svo gefins með prufu af Illuminating Powder, augnkremi sem virkar líka sem primer eða grunnur fyrir hyljara undir augun og Extreme Party maskara sem mig hefur lengi langað að prófa! Ég notaði maskarann um helgina og hann er mjög fínn - ekkert extreme reyndar finnst mér en ég ætla samt að gefa honum smá séns, sjá hvernig hann verður ef ég set nokkrar umferðir.
xoxo
p.s. Ég keypti alveg óvart varalit líka í MAC um helgina... geggjaðan lit, mynd væntanleg!
1 note · View note
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Bobbi Brown hyljari
Langar svolítið að prófa þennan:
Tumblr media
Þetta er sem sagt hyljari sem er búinn að fá fullt af lofi og verðlaunum, öðrum megin er hyljarinn sjálfur sem er kremkenndur og maður notar puttana eða hyljarabursta til að setja hann á. Hinum megin, þetta ljósara, er púður sem maður dúmpar yfir til að ná fullkominni þekju yfir baugasvæðið. Ekki skemmir fyrir að hyljarinn  heldur rakastigi húðarinnar í jafnvægi og stuðlar þar með að færri línum (yfirborðsþurrkur í húðinni getur ýtt undir línumyndum, sérstaklega þar sem húðin er viðkvæm eins og á augnsvæðinu).
Mig langar svakalega að prófa þetta, þó ég sé reyndar mjög ánægð með einn sem ég á frá Shiseido - en þetta er snyrtivörusýkin að kalla, alltaf langar mann að prófa nýja dótið!
Ástæðan fyrir því að ég fór að skoða Bobbi Brown vörurnar er að það er kynning í dag og á morgun í Snyrtistofunni Lind á Akureyri, er ekki ótrúlega góð hugmynd að kíkja þangað og skoða?
xoxo
2 notes · View notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Maskarar, ó maskarar!
Sko. Maskarar eru eitthvað sem við notum langflestar. Þeir eru sú snyrtivara sem þarf að endurnýja oftast, þannig að við stöndum ansi oft frammi fyrir spurningunni: "Hvernig maskara á ég að kaupa mér?" Staðreyndin er sú að það er enginn einn maskari sem hentar fyrir ALLA og ALLAR konur eru himinlifandi með. Það fer nefnilega mikið eftir því hvernig þín augnhár eru hvað virkar fyrir þig.
T.d. ætti kona með stutt augnhár frekar að velja sér maskara sem lengir heldur en þykkir. Margir maskarar lengja og þykkja og það er bara gott mál - um að gera að prófa þá - en standi valið um lengingu EÐA þykkingu myndi viðkomandi velja lengingu, einfaldlega til að gera meira úr því sem hún hefur.
Sjálf er ég með frekar löng augnhár og vel því undantekningalaust maskara sem þykkja vel. Ég þoli ekki gúmmíbursta nema á einum maskara; Dior Iconic (ekki að ég sé búin að prófa alla í heiminum!), því mér finnst þeir ekki greiða nógu vel úr. Ég vil frekar hafa þykka bursta sem ná inn á milli augnháranna og greiða úr, því þó maskarinn eigi að þykkja á maður ekki að enda með þrjú feit augnhár.
Svo er nú ráðgátan um það hvernig hver maskari virkar fyrir hvern og einn. Fyrrnefndur Iconic þykkir kannski mín augnhár - en lengir einungis fyrir næstu. Það er ekki algilt að þó vinkonan fíli ekki maskarann þá eigir þú ekki eftir að gera það!
Af því að strangt til tekið á maður að henda maskaranum sínum eftir þriggja mánaða notkun - hvort sem hann er orðinn þurr eða ekki, þá er orðið frekar blóðugt að eyða 5-7000 krónum í eitt stykki. Það þarf auðvitað hver að meta fyrir sig og margar eru orðnar húkkt á einhverjum og hreinlega þora ekki að prófa aðra! Margir góðir maskarar eru á markaðnum og nefna má t.d. HR Lash Queen, þeir eru sannarlega búnir að stimpla sig inn hjá íslenskum konum og ekki er verra að þeir koma í mörgum útgáfum og henta vel þeim sem eru með viðkvæmt augnsvæði.
Tumblr media Tumblr media
Dior er með marga góða maskara, minn uppáhalds er Iconic, hann er með gúmmíbursta og þykkir vel og lengir einnig.
Maybelline hefur sannað sig á maskarasviðinu og einn allra vinsælasti hjá þeim er Colossal, þessi guli. Hann á að gefa allt að 9x þykkingu og inniheldur Collagen til að "plumpa" augnhárin. Collagenið gerir það að verkum að það er frekar skrítin lykt af honum, en þær sem láta það ekki fara í taugarnar á sér hafa verið mjög ánægðar með hann.
Tumblr media
Hvaða maskara notar þú?
xoxo
6 notes · View notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Skipulag
Mig langaði svo að hafa burstana mína á einhverjum fínum stað, ekki alltaf að velkjast um í burstaveski eða með öllum hinum snyrtivörunum - svo þegar ég fékk mér hina sérlegu snyrtikommóðu ákvað ég að fjárfesta í skrautvösum og sandi og steinum til að stinga burstunum ofan í. Ég hef séð þetta á fleiri en einum og fleiri en tveimur stöðum og finnst þetta alltaf koma svo vel út! Eina leiðinlega er að þessir skrautsteinar eru svo andsk... dýrir! Notaði 3 poka í sitthvorn vasann og það slagaði sko upp í verðið á kommóðunni ;)
Hér er annar:
Tumblr media
Hinn er svo inni á baði eins og er og er með burstunum sem ég nota mest á sjálfa mig. Langaði bara að sýna ykkur :)
xoxo
0 notes
bjutiboxid-blog · 13 years
Text
Blixz á neglurnar
Jæja nýjasta æðið á neglurnar eru álþynnur sem eru hitaðar með hárblásara og lagðar ofan á neglurnar. Á að haldast í allt að tvær vikur og jafnvel lengur á tásunum. Hægt er að fá þetta í allskonar útfærslum, heillitaðar eða með mynstrum.
Tumblr media
Hér er bara sýnishorn af því sem er til..!
Tumblr media
Einhver skvísa búin að setja á sig!
Hér má fara inn á íslenska facebook síðu þar sem naglafræðingur býður upp á ásetningu á þessu! Sá að OPI var líka komið með svona, geta náttúrulega ekki verið minni menn ;) Það kostaði rétt um 3000 krónur í Hagkaup - þá eru 16 þynnur í pakka... það er reyndar tala sem ég skil ekki! En hvað um það ;) Væri gaman að prófa þetta!
xoxo
0 notes